16 nóvember 2006

Jólin eru að koma... ég er ekki í stuði fyrir jólin en það er nú kannski ekki að marka mig núna því það er nú bara16 nóvember.

Mér finnst jólin ekkert mjög spennandi, ekkert nema stress, peningaeyðsla og meira stress... er ekki að segja að það sé slæmt að eyða peningum en ég meina fokk hvað jólin eru dýr... voru það ekki einhverjir miljarðar sem fréttirnar voru að tala um?

Skóli!!!... skil þetta ekki:(

11 október 2006

Fokkfeis

... Halda mætti að þú hefðir ekki tekið bílpróf. Eða var þér ekki kennt hvernig leggja á bíl í stæði? Kannski eru gjörsamlega hugsunarlaus? Þú mættir gjarnan taka tillit til hvernig er að komast um gangstéttina fyrir þá sem þar eiga leið um. Líka þrengir þú götuna verulega. Réttast væri að láta draga bíl þinn í burtu hefuru hugsað útí að það kostar þig 10 - 15 þúsund krónur að leisa bíl þinn út úr geymslusvæði vöku.

Nágranni.


miði með þessu var á rúðunni minni þegar ég fór út kl 8 í morgun... fokk off, ég ætla ekki að segja að ég hafi ekki lagt í illa í stæðið ég viðurkenni það alveg en það eru svo margir aðrir sem leggja illa í þessari götu... ooooog ekki mér að kenna að ég lagði hliðina á ljósastaur sem augljóslega þrengir blessaða götuna, þú nágranni ættir frekar að kvarta við ljósastaurinn því ekki ætla eg að leggja einhvað öðruvísi!!!!

hver í andskotanum situr við tölvuna fyrir kl 8 á morgnana og býr til sona miða... var sko út prenntað og alles... þessi nágranni ætti frekar að nota tíman í einhvað annað, og svo hefur hann sennilega bara gott af því að taka smá sveig fram hjá bílnum, ekki eins og ég eigi einhvað stóran bíl!

Það er bara rúmlega vika síðan ég fékk fyrsta kvörtunarbréfið, kannski þetta verði svona vikulegur atburður.

En allavega Dísa á afmæli eftir sirka 10 mín... innilega til hamingju með afmælið mín kæra:)

05 október 2006

Dont hassel the hoff...

prófið á laugardaginn gekk svona lalalalala, veit ekkert hvernig mér gekk!

fór á leik áðan, skallagrímur - keflavík, týpískur skallagrímsleikur... gekk vel fyrst en töpuðum svo:(

allt rosalega gott að frétta af ásrúnu, sakna hennar svakalega mikið

Bíllin minn fer í viðgerð á morgun, vona að hann verði lagaður:)

góða nótt

29 september 2006

blogg

Próf á morgun, próf á morgun... próf á fokking morgun! Á laugardegi, eigum við að ræða þetta einhvað, búin að læra úr mér heilan ef svo má segja:) sem er fínt sosem

"Lærðu að leggja bílnum þínum!!!" var búið að setja undir rúðuþurkuna á bílnum mínum þegar ég fór úr bókasafninu í dag... lagði bílnum mínum þarna í morgun, ekki hliðina á neinum, og lagði honum líka sona voða nett í stæðið, svo lærðu sjálf að leggja bílnum þínum... asni!!!

jæja ætla að fara að læra aðeins meira:)

18 september 2006

Bootcamp bloody bootcamp.... magnað að byrja að hreyfa sig, þetta er ótrúlega erfitt... fyrsti tímin var í morgun og ég er strax komin með harðssperrur!

Þjálfarinn sagði við mig" þú verður að afsaka hvað þessi tími er LÉTTUR, við tökum betur á því næst" og ég fékk áfall, ég stóð þarna næstum fjólublá í framan, gat varla andað, við það að æla og skalf öll... en hann var bara að djóka sem betur fer

ótrúlegt hvað ég get alltaf grenjað mikið yfir extreme makeover home edition... uhuhuhu:(

11 september 2006

Haltu kjafti Jói....

Bílinn minn er bilaður, einhvað að dæminu sem sér um hraða og startið.... er soddan ekkibílakall að ég man ekki hvað þetta heitir. Já og ekki nóg með það en það var bara tímaspursmál hvenar bílhurðin myndi detta af! þangað til í dag þá var hún nefnilega löguð blessuninn:)

Fór á nýnemadjamm á föstudaginn sem var fínt held ég!

Fór í brúðkaup hjá Þorvaldi, bróður mömmu og Helen, svakalega flott brúðkaup, góður matur og svakalega mikið dansað:)

Er að byrja í bootcamp á næsta mánudag, fannst komin tími til þegar ég gerði mér grein fyrir að ég er ekki í NEINU formi, get ekki gert eina armbeygju... sem er slæmt! þetta verður fjör, er reyndar búin að heyra sögur af fólki sem fór að gráta af áreynslu en ég ætla rétt að vona að ég lendi ekki í því. Svona þegar ég er að sjá þetta fyrir mér væri þetta reyndar mjög fyndið... eða mér finnst það:)

ætla að fara að læra verið bless

05 september 2006

Fiskur er fínn!

Skólin er byrjaður á fullu, líst bara vel á þetta... er reyndar pínu "hrædd" við einn kennaran... það er svona Ludmilu svipur á henni!!

Sigrún átti afmæli í gær, til hamingju með það, tuttuguogsjö ára unglingur.

... hún bauð upp á silung og hrefnukjöt sem var mjög gott... og ég skal sko segja ykkur það að ég borðaði þorsk í kvöldmatin í kvöld, rosa fínan þorsk já. Fyrir einu ári var eini fiskurinn sem ég borðaði fiskibollur svo ég ætla bara að gefa mér klapp:) klapp*klapp

jeeesokeibæsíjúleiter